Þeir læðast allt í kringum okkur, þeir gægjast inn um eyrun á okkur á leiðinni í vinnu eða skóla, poppa upp fyrir framan okkur í tölvunni og troða sér fyrir framan okkur á kvöldin.
Þeir stjórna umræðu samfélagsins og skoðunum margra.
Margir virðast bara hlusta og trúa öllu sem þeir heyra og sjá. Núna nýverið komst landsþekktur einstaklingur í fréttirnar vegna þess að hann var kærður fyrir nauðgun. Hann var "kærður" en flestir og alltof margir tóku þessu eins og hann hafi verið "dæmdur". Ekkert nema vitnisburður stúlku nægði til þess að brjóta niður mannorð hans og rústa orðspori hans, bókin hans seldist lítið, sjónvarpsþáttur hans var stoppaður og hann tekinn úr útvarpsþætti. Ákveðinn fjölmiðill lagði svo þennan einstakling í algjört einelti og voru birtar margar fréttir í viku um minnstu hreyfingar mannsins og margar þeirra á neikvæðan hátt. Þessi sami miðill lagðist svo í baráttu gegn eineltis barna með því að taka upp einelti gagnvart skólastjóranum . Er þetta sanngjarnt? Er Ísland virkilega svo spillt að þetta sé hægt?
Við á Íslandi erum fá og spillingin eftir því.
Með tilkomu netsins tel ég hinsvegar að þetta hafi að mörgu leyti batnað, enda er mun auðveldara að afla sér upplýsinga frá mismunandi miðlum sem eru þar af leiðandi með mismunandi sjónarmið og skoðanir. Maður verður að sætta sig við það fyrst að fréttamiðlar geta ekki verið hlutlausir.
Eitt vekur þó athygli mína, sumar fréttir sem eru "top hits" í heimsbyggðinni fá ekki þann heiður að birtast á vinsælustu fréttasíðum Íslands og ef þær birtast þar þá fá þær litla sem enga athygli. Sumum finnst einfaldlega bara best að lesa jákvæðar og góðar fréttir og fara auðveldustu leiðina í gegnum allt, ég kýs að kalla þessa leið "Íslensku leiðina". Um daginn var vinsælasta frétt vikunnar á vinsælasta fréttavef landsins ,,Britney spears með flatan maga". Já flott að Britney er að taka sig á í ræktinni og allt það en er í alvöru ekkert annað mikilvægara að gerast en það? Skipta vikulegar ranghugmyndafærslur valdamestu manna Íslands og heims engu máli?, Vikulegir harmleikar útí heimi og brot á réttindum íslenskra manna og kvenna blikna náttúrulega í samanburði við svita og erfiði Britney í ræktinni er það ekki?
Þetta eru auðvitað bara mín heilabrot
Ég er einn af þeim fjölmörgu sem tóku þátt í Skrekknum í gær og þótti mér gaman að en þó er ýmislegt sem  mætti skoða þarna og sumt var einfaldlega svo fáránlegt að það gekk fram af mér.
Fyrst af öllu vill ég varpa þeirri spurningu til okkar ástkæru Reykjarvíkurborgar afhverju 5 sæti af 5 í dómarastúkunni voru fyllt af kvenmönnum. Ef dæminu yrði snúið við þori ég að fullyrða að allt væri vitlaust.
Annars vegar heyrði ég það að ákvörðun um sætaskipan atriða hafi farið þannig fram að þessar listaspírur sem voru að dæma hafi bara talað saman og komist að niðurstöðu, þessi vinnubrögð eiga við engin rök að styðjast. Auðvitað á þetta að ganga svoleiðis fyrir sig að hver og einn dómari fær blað í hendurnar þar sem þeir gefa hverju atriði stig úr mismunandi atriðum. T.d. kannski 1-10 fyrir frumleika og 1-10 fyrir tónlist og svo yrðu stigin bara talin saman.
Nú er komið að því sem fékk mig til þess að svelgjast á gosinu mínu, hella því öllu yfir mig og verða allur klístraður. Núna í kvöld fékk ég símhringingu frá elskulegri móður minni en hún hafði þá verið að tali við pabba sinn semsagt afa minn. Afi minn var yfir sig hrifinn af Skrekk og sérstaklega af atriðinu sem vann sem hefur þó ekki fengið besta dóminn frá götudómstólnum. Hann hinsvegar upplýsti móður mína betur. Hann hugsaði það sem að ég held nánast enginn hafi dottið í hug fyrr en nú. Er atriðið hjá Háteigsskóla stolið? Já, mér finnst þetta allavega vera þjófnaður og skandall fyrir keppnina en hvað veit ég? Atriðið byggist á ljóði sem heitir Síðasta blómið, Að mínu mati eitt allra fegursta ljóð sem hefur verið búið til, allt í lagi með það. Ég hvet ykkur til þess að lesa þetta http://svanurg.blog.is/blog/svanurg/entry/657277/. Þetta segir allt sem segja þarf og myndbandið segir sitt enda nánast alveg eins og atriðið nema bara teiknað, tónlistin sem er undir er líka alveg eins. http://www.bertoldhummel.de/english/commentaries/opus_55A.html Hérna er einnig ballet í stíl við atriðið en það vildi bara svo til að það var líka ballet í Háteigsskólaatriðinu, hmm skrítið. Einnig má sjá að þarna er búið að setja ljóðið upp í leikþætti sem svipa mjög mikið til atriðisins.
Mér finnst allavega að hópur sem er svo gríðarlega ófrjór í hugsun að hann þarf að endurgera annað atriði og ALVEG EINS eigi ekki skilið að vinna þennan virta titil Skrekkinn.
http://www.youtube.com/watch?v=X1RrEAroZbw
Nú er það komið á hreint að verndarar okkar allra fengu alveg hreint "rausnarlega" 4,25% hækkun á launum sínum. Þessir menn sem stóðu margir hverir fyrir framan alþingishúsið hér ekki fyrir svo löngu, fengu skyr í andlitið, voru beittir ofbeldi en þeir voru tilbúnir að fórna sér fyrir það fólk sem gefur svo skít í þá hér í dag. Ég efast ekki um það að margir hverjir af þessum mönnum skipti um lið og verði í liði múgsins þann 1. október þega alþingi tekur aftur til starfa.
Persónulega þekki ég líf lögreglumannsins vel enda eru margir af mínu nánasta fólki lögeglumenn. Ég man að oft þurfti afi að eyða heilu helgunum í það að streytast á móti vandræðaunglingum, grashausum og útúrspíttuðum glæpamönnum. Samt fá þessir menn töluvert lægri laun heldur en margar aðrar stéttir.
Finnst þér sanngjarnt að lögreglumenn fái 5 sinnum lægri laun heldur en eitthverjir menn sem standa inná alþingi að segja sína skoðun sem er oftar en ekki algjört rugl. Auðvitað þurfa samt eitthverjir að standa þarna, það heldur landinu okkar gangandi, en spurjið ykkur nú hvort mynduð þið heldur fórna alþingismönnum sem skattarnir ykkar renna til eða lögreglumönnunum sem leggja líf sitt að veði dag hvern? Fyrir utan það að það virðist vera svoleiðis að nútímafólk virði lögregluna ekki eins og það ætti að gera. Hvar værum við án þeirra?
Margir þeirra hafa komið að deyjandi fólki eftir bílslys og jafnvel lent í skotárásum og það leggur þetta allt á sig svo að þú kæri lesandi getir labbað óhulltur um göturnar nánast áhyggjulaus. Svo koma þeir heim dauðþreyttir dag eftir dag eftir þessu sjálfboðavinnu.
Þeir fá 282 þúsund á mánuði fyrir skatta. Það nægir einfaldlega ekki til þess að halda 4 manna fjölskyldu gangandi í mánuð. Sá tími virðist nálgast óðfluga að það verði engir lögreglumenn eftir að vernda þig fyrir ránum, ofbeldi eða jafnvel hnífsstungu eða skotárásum.
Hvað gerum við þá?
Sá dagur sem að við göngum í ESB virðist nálgast óðfluga. Kusum við virkilega yfir okkur stjórn sem hefur ekki meira vit en þetta, mér finnst alveg hreinar línur að þetta fólk sem er í þeim flokkum sem stjórna þessu landi er ekki hæft til þess að stjórna jafn viðkvæmu landi og Íslandi. Viðkvæmu?, já viðkvæmu, við erum með eina bestu auðlind sem fyrirfinnst. Ég er að tala um sjávarútveginn. Sjávarútvegur stendur nú fyrir 40% útflutningsverðmæta landsins, ríflega 12% af vergri landframleiðslu og sér um það bil 7% íbúanna fyrir atvinnu. Ég er ekki að segja að hann verði alfarið tekinn frá okkur en við munum njóta minna góðs af honum. Það er verið að tala um að við gætum orðið stórveldi í sjávarútvegi innan ESB, bíddu erum við ekki nú þegar stórveldi í sjávarútvegi út um allan heim? Nú skal hver dæma fyrir sig. Úr einu í annað, ég er virkilega forvitinn um hvað kjósendum vinstri grænna finnst um þetta. Sá er flokkurinn sem sveik alla sína kjósendur og fer þar fremstur í flokki Steingrímur J nokkur Sigfússon. Þeir virðast hlýða Samfylkingunni í einu og öllu. ESB er engan veginn okkar leið út úr þeim hremmingum sem við erum í. Sumir vilja meina að evran sé okkar leið, seinast þegar ég vissi var hún ekkert svo vel stödd heldur. Grikkir eru gott dæmi um hvers vegna við ættum ekki að ganga í ESB. Þeir voru ekki í slæmum málum áður en þeir gengu í þetta Evrópusamband en sjáið þá núna, þeir virðast hafa náð botninum.
Ef það verður þjóðaratkvæðagreiðsla hlýtur þessi hugmynd að kolfalla líkt og Icesave I, II og III gerðu. Enda tel ég að íslenska þjóðin sé alls ekki svo vitlaus heldur sé það fólkið sem er í stjórnarstólnum.
Herra Ögmundur Jónasson ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum þegar ég las hluta úr ræðu þinni um laun í samfélaginu. Þú sagðir að
hámarkslaun ættu í mesta lagi að vera þrefallt hærri en lágmarks laun. Inná www.vr.is segir skýrt ,, Byrjunarlaun eru nú að lágmarki kr. 162.450." Allt í lagi segjum að unglingur  sem vinnur við að vera á kassa í Bónus frá 8 - 4 fái þessi laun, hún vinnur ekkert utan vinnustaðar og vinnunni fylgir lítil sem engin ábyrgð. Á annað borð er manneskja sem vinnur sem framkvæmdarstjóri í stóru fyrirtæki sem þarf að vinna mikið heima og ber mikla ábyrgð á baki sínu. Hann sér um laun fólks og margt annað mikilvægt auk þess sem hann býr yfir gríðalegri starfsreynslu. Á hann þá að fá 487.385 krónur í laun á mánuði til þess að sjá kannski fyrir 6 manna fjölskyldu?
Þessi hugmynd hjá þér Ögmundur minn er með fullri virðingu alveg fáránleg í alla staði. Hugsaðu nú þinn gang og leggðu nú eitthvað til málanna sem væri virkilega gagnlegt.
Ef eitthverjum finnst ég hafa móðgað eitthverja starfsstétt þá var það ekki meiningin.